Í ljósi þess að við erum að fara að ljúka náminu okkar í vor með flutningi á lokaverkefni...
Hefðu einhverjar áhuga á að athuga með svona námskeið?
29., 31.janúar og 3.febrúar 2008
Námskeið fyrir fólk sem vill læra frjálslega og fagmannlega framkomu. Kenndar eru áhrifaríkar aðferðir til að undirbúa hugann, yfirstíga ótta og standa upp og tala við hvaða tækifæri sem er. Kennt þriðjudag og fimmtudag frá 19:30 til 22:30, sunnudag 13:00 til 17:00. Ath! Takmarkaður fjöldi þátttakenda.
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar.
Staður: Grand hótel Reykjavík
Verð: 27.900 kr.
Smelltu hér til að skrá þig
Það væri þá spurning hvort við myndum skella okkur nokkrar saman - eða þá að fá hann til okkar....
Fyrirlestrar og námskeið fyrir félagasamtök, fyrirtæki og hópa
Guðjón Bergmann þjónar fyrirtækjum, hópum og félagasamtökum með fyrirlestra- og námskeiðahaldi.Á haustmánuðum hefur hann meðal annars haldið fyrirlestra hjá Íþróttakennarafélagi Íslands, Tölvu- og verkfræðiþjónustunni, Akureyrarbæ, Ljósinu (endurhæfingarstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur), Skýrr, Gerðarskóla, Íslenskri erfðagreiningu, leikskólanum Mánabrekku, Samskipum, Siglingastofnun, Nýherja, PriceWaterHouse Coopers og fleirum. Á síðasta starfsári hélt hann fyrirlestra fyrir rúmlega fjögur þúsund manns hjá félagasamtökum, bönkum, verslunum og fleiri aðilum.
Fáðu nánari upplýsingar um fyrirlestrahald Guðjóns með því að smella hér! Sendu fyrirspurn:
Guðjón Bergmann - 690-1818
Jóhanna Bóel - 698-0145
Ég skellti mér á "þú ert það sem þú hugsar" í sumar... og fannst það svooo málið... hvað segiði um þetta stelpur??